Hvernig virkar þetta?
Tjónamat og tjónaviðgerðir
Ef þú hefur orðið fyrir tjóni þá er mikilvægt að tilkynna það til tryggingafélagsins þíns. Næsta skref er að láta meta tjónið og koma bílnum í viðgerðarferli. Öll samskipti við tryggingafélagið fara í gegnum okkur eftir tjónaskoðun.
1. Bóka tjónaskoðun
Þú bókar sjálf/ur tíma sem hentar að koma með bílinn í tjónamat eða mætir til okkar í tjónaskoðun.
2. Tjónamat
Þú kemur með bílinn til okkar og við tjónaskoðum, tökum myndir, metum og skráum tjónið. Þú færð tíma til að koma með bílinn í viðgerð.
3. Undirbúningur
Við undirbúum vinnuna gagnvart bílnum, pöntum varahluti og útvegum bílaleigubíl ef það á við.
4. Viðgerð
Bíllinn fer í viðgerðarferli sem alla jafna er 3 - 5 dagar, fer eftir umfangi tjónsins.
Þjónusta
Lentir þú í tjóni?
Engar áhyggjur - við lögum þetta fyrir þig
Almennar tjónaviðgerðir og málun á öllum gerðum bíla ásamt því að sjá um framrúðuskipti
Tjónamat
Við erum í góðu samstarfi við öll tryggingafélögin. Þú kemur með bílinn til okkar og við tjónaskoðum og skráum tjónið. Við útvegum bílaleigubíl sé þess óskað og bíllinn fer í viðgerðarferli.
Bílaréttingar
Hágæða þjónusta við bílasprautun og réttingar á öllum gerðum bifreiða. Allar viðgerðir eru unnar af fagmönnum með bestu mögulegu efnum.
Bílasprautun
Allir bílamálarar hafa réttindi til málunar og viðgerða. Við notumst við Glasurit málningu.
Plastviðgerðir
Viðgerðir á stuðurum og öðrum plasthlutum bifreiðarinnar.
Mössun
Lakkið á bílnum er slípað / pússað og fær nýbónað útlit. Eftir að bíll hefur verið massaður verður hann þægilegri í þrifum og bón endist lengur á bílnum.
Framrúðuskipti
Framúðuskipti og bílrúðuskipti fyrir allar tegundir bíla. Sjáum um öll samskipti við tryggingafélög vegna bílrúðutryggingar.